Njarðvíkur prestakall kynnir Sumarfjör - Leikjanámskeið fyrir 6-8 ára í sumar Námskeiði er frá mánudeginum 10. júní til föstudagsins 14. júní. Miðað er við að börnin hafi lokið 1. bekk. Staðsetning: SafnaðarheimiliðInnri Njarðvík Námskeiðin er frá kl. 9:00-16:00. Húsið opnar kl.8:45 Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá í boði. Við munum fara í ýmsa leiðangra í nágrenninu ogfara í fjölbreytta inni- eða útileiki og íþróttir. Auk þess ætlum við að föndra, syngjaog bjóða upp á ýmsar stöðvar í frjálsu vali,svo fátt eitt sé nefnt.Markmið okkar er að efla sjálfstraust barnanna og valdeflaí gegnum leik og fræðslu,og stuðla að vináttu og kærleika.Á hverjum degi munum við hafa fræðslu um lífið og tilveruna út frá kristilegum gildum. Það eru tveir starfsmenn sem halda utan um Sumarfjörs námskeiðið, þær Halla Marie Smith æskulýðsfulltrúi Njarðvíkurprestakalls ogtómstundafræðingur, og Oddný Þórhallsdóttir kennari,auk ungleiðtogar.
Kostnaður og skipulag Þátttakendur koma með eigið nesti alla dagana, það verða 3 nestistundir yfir daginn. Við mælum með að börnin komi með hollt og gott nesti með sér og merktan vatnsbrúsa. Boðið verður upp á pylsu, djús og íspartý í hádeginu á lokadegi námskeiðsins. Takmarkað pláss í boði. Þáttökugjaldið er greitt á sama tíma og barnið er skráð á námskeiðið. Verð á námskeiði er 18.200 kr. Veittur er 20% systkinaafsláttur. Lagt inn á bankareikning kirkjunnar bankaupplýsingar: 147-26-004444 / kt 6601695639 Sendið kvittun á halla@njardvikurkirkjur.is Hafið samband við Höllu Marie æskulýðsfulltrúaef einhverjar spurningar vakna. Netfang: halla@njardvikurkirkjur.is